11 hljómsveitir í úrslit Músíktilrauna 2009
Eftir frábært síðasta undankvöld í Íslensku Óperunni í gær, þá er það komið á hreint hvaða hljómsveitir munu leika á úrslitum Músíktilrauna í Listasafni Reykjavíkur,Hafnarhúsinu. Einnig hefur dómnefnd valið 3 hljómsveitir áfram sem þóttu hafa staðið sig sérstaklega vel á undankvöldunum. Það verða því 11 hljómsveitir í úrslitunum í ár.
Þær eru:
Blanco
Discord
Artika
Ljósvaki
Spelgur
Bróðir Svartúlfs
The Vintage
Flawless Error
Melkorka
Captain Fufanu
We Went To Space
Úrslitakvöldið verður haldið laugardaginn 4.apríl í Listasafni Reykjavíkur, og hefst kl. 17. Miðasala er hafin í Hinu Húsinu,Pósthússtræti 3-5. Aðgangseyrir er 1000 kr. Einnig mun Rás 2 útvarpa beint frá kvöldinu. Fyrir utan að verðlaun verði veitt fyrir 1.2. og 3. sæti, og hljóðfæraleikarar Músíktilrauna verðlaunaðir, verður Hljómsveit Fólksins valin með símakosningu.
Það verður því mikið um dýrðir og ljóst að það stefnir í spennandi og fjölbreytta keppni.
Senda á Facebook