Músíktilraunir 2009


Pönksveitin Pungsig

Sveitarfélag: Akranes

MySpace/Facebook:
 
Nöfn og aldur:
Baldur Þórðarson: Trommur
Kristján Gauti Karlsson: Bassi & söngur
Tómas Guðmundsson: Gítar

Um bandið:
Jörðin skalf, himnarnir hristust og heilu fjöllin tóku á rás. Það rigndi eldi og brennisteini í upphafi októbermánaðar síðasta árs, þegar hin heilaga þrenning kom saman í fyrsta sinn síðan Surtur brenndi heiminn í Ragnarökum. Pönksveitin Pungsig var orðin að veruleika. Samsett úr slitnum gítarstreng, brotnum trommukjuða, fljótandi hrauni og kvalarfullu örlagaveini fordæmdra sála sem brenna í logum helvítis reis Pönksveitin Pungsig fullmótuð úr iðrum jarðar, reiðubúin að velta heiminum á hliðina.
Eitt orð: Pönk

Hljóðdæmi:
Ást, Krútt