Spelgur

Sveitarfélag: Kópavogur
MySpace/Facebook:
Nöfn og aldur:
Stefanía Eysteinsdóttir 16 ára trompetleikari
Katrín Helga Andrésdóttir 16 ára gítarleikari
Um bandið:
Dúóið Spelgu sérhæfir sig í framúrstefnulegu Austur- Evrópsku raffoppi með rómantísku ívafi. Hún er sögð trylla lýðinn hvar sem hún kemur og það ganga meira að segja sögur af því að á seinasta giggi hafi aldraður maður dáið úr hamingju. Þetta er hljómsveit sem er pottþétt þess virði að fylgjast með og væri það mikill heiður fyrir músíktilraunir að fá hana til að prýða keppnina í ár. skiljanlegt er þó ef þið hafnið henni því ég geri mér fyllilega grein fyrir því að keppnin í ár væri ekki eins spennandi ef sigurvegarar væru augljósir frá upphafi.
kveðja frá umboðsmanni Spelgur, Jarvis Cocker
Hljóðdæmi:
Músíktilraunir, Rules are for schools