Músíktilraunir



Skráningu lokið í Músíktilraunir 2010|04.03.2010
Músíktilraunir 2010 Skráningu í Músíktilraunir 2010 er nú lokið og tekur 41 hljómsveit þátt í ár. Upplýsingar um þær hljómsveitir sem fram koma og tóndæmi eru nú aðgengileg hér á vefnum, undir HLJÓMSVEITIR. Við minnum enn á að undankvöld Músíktilrauna verða haldin 15. - 18. Mars í Íslensku Óperunni og úrslitakvöldið 27. Mars í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu.


Skúrinn á Rás 2 og Músíktilraunir kynna hljómsveitirnar í Músíktilraununum 2010 á Rás 2|25.02.2010
Bróðir Svartúlfs 2009 Þættirnir verða 4. og 11. mars þar sem allar 40 hjómsveitirnar sem keppa verða kynntar í Skúrnum á Rás 2 fyrir undanúrslitakvöldin 15.,16.,17. og 18. mars. Síðan verða hljómsveitir þær sem komast í úrslit kynntar í þáttunum 19. og 26. mars.Að lokum mun Rás 2 senda beint út frá lokakvöldi Músíktilrauna 27. mars.


Skráning á fullu !|23.02.2010
Músíktilraunir 2010 Umsóknir streyma nú inn til okkar af öllum gerðum og stærðum! Skellið ykkar umsókn inn hér á síðunni (til vinstri). Skráningu lýkur svo 1.mars.


Gróðurhús íslenskrar tónlistarsköpunar,skráning að hefjast í Músíktilraunir 2010|11.02.2010
snúrur og tónlist Skráning í Músíktilraunir hefst 15.feb. og lýkur 1.mars hér á síðunni okkar. Eingöngu verður um rafræna skráningu að ræða, þ.e. einungis verður hægt að sækja um þátttöku í gegnum þessa heimasíðu. Nú er um að gera og útbúa "demo" / hljóðdæmi, sem þið sendið síðan inn með umsókninni! Músíktilraunirnar verða svo haldnar á eftirfarandi dögum: undankvöldin í Íslensku Óperunni 15.-18.mars og úrslitakvöldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu 27.mars.


Undankvöld og úrslit Músíktilrauna 2010|03.02.2010
Demo Nú hefur verið staðfest að undankvöld Músíktilrauna 2010 verða haldin dagana 15.-18. mars í Íslensku Óperunni. Úrslitakvöldið verður síðan haldið í Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur 27.mars. Skráning í Músíktilraunir opnar 15. febrúar og lýkur 1. mars. Allar nánari upplýsingar um skráninguna munu birtast á heimasíðunni þegar nær dregur. Eingöngu verður um rafræna skráningu að ræða, þ.e. einungis verður hægt að sækja um þátttöku í gegnum heimasíðuna.


Úrslitakvöldið verður í Hafnarhúsinu 27.mars 2010|02.02.2010
Nú hefur það verið staðfest að úrslit Músíktilrauna 2010 verða haldin í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, líkt og síðustu ár. Úrslitin verða haldin laugardaginn 27.mars.


Skráning hefst 15.feb og lýkur 1.mars.|21.01.2010
Skráning í Músíktilraunir hefst 15.feb. og lýkur 1.mars. Allar nánari upplýsingar um skráninguna munu birtast hér á heimasíðunni þegar nær dregur. Eingöngu verður um rafræna skráningu að ræða, þ.e. einungis verður hægt að sækja um þátttöku í gegnum þessa heimasíðu. Nú er um að gera og útbúa "demo" / hljóðdæmi, sem þið sendið síðan inn með umsókninni! Góða skemmtun!


Undankvöld Músíktilrauna 2010; 15.-18.mars í Íslensku Óperunni|21.01.2010
Nú hefur verið staðfest að undankvöld Músíktilrauna 2010 verða haldin dagana 15.-18.mars í Íslensku Óperunni. Dagsetning ásamt staðsetningu úrslitakvölds verður tilkynnt síðar.


Breyttur sýningartími á þætti um Músíktilraunir 2009!|15.12.2009
Nú er komið að sjónvarpsþættinum um úrslit Músíktilrauna 2009 á RÚV. Þetta er 55 mínútna þáttur sendur út þann 05.01.2010 Hann hefur að geyma lög frá öllum sem komu fram á úrslitakvöldinu 4.apríl, viðtöl við alla þar og atriðum frá verðlaunaafhendingu. Þetta er frábær skemmtun fyrir alla tónlistaráhugamenn og konur. Fylgist með dagskrá RÚV fyrir nákvæmari tímasetningu þegar nær dregur.


Músíktilraunir 2010|10.11.2009
Músíktilraunir 2010 verða haldnar frá 19.-22. mars (undankvöld) og úrslitin þann 27.mars. Athugið að dagsetningar fyrir Músíktilraunirnar eru óstaðfestar!







Músíktilraunir á Facebook