Verðlaunin á Músíktilraunum í gegnum árin hafa ekki verið af verri endanum. Síðan tilraunirnar hófust 1982 hafa verðlaunin sífellt orðið veglegri og fjölbreyttari. Hljóðfæraverslanir, upptökuver og fyrirtæki tengd tónlistariðnaðinum sýna mikinn velvilja og gefa vegleg verðlaun, og þökkum við þeim innilega fyrir veittan stuðning.
Árið 2009 voru veitt verðlaun fyrir 1., 2. og 3. sæti, hljóðfæraleikara og söngvara tilraunanna, viðurkenning fyrir íslenska frumsamda textagerð og hljómsveit fólksins verður valin af áhorfendum í símakosningu.
Verðlaunin árið 2009 voru sem hér segir:
1. sæti
-20 hljóðverstímar í hljóðveri Sigur Rósar, Sundlauginni, ásamt hljóðmanni.
-20 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum.
-Flug út í heim með Icelandair,og Hinu Húsinu.
-Spila á 17.júní í Reykjavík.
-Spila á Iceland Airwaves hátíðinni.
-Þátttaka í Hljóðverssmiðju Kraums og hljóðversins Tanksins,Flateyri.
2. sæti
- 20 hljóðverstímar í Gróðurhúsinu.
-15 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum
-Þátttaka í Hljóðverssmiðju Kraums og hljóðversins Tanksins,Flateyri.
3. sæti
-Upptökutæki ,“ZOOM H4“ frá Tónastöðinni.
-10 þúsund króna úttekt frá 12 Tónum
-Þátttaka í Hljóðverssmiðju Kraums og hljóðversins Tanksins,Flateyri.
Gítarleikari Músíktilrauna
-20 þúsund króna úttekt í Hljóðfæraversluninni Rín
Bassaleikari Músíktilrauna
-30 þúsund króna úttekt í Tónastöðinni
Hljómborðsleikari/forritari Músíktilrauna
- 30 þúsund króna úttekt í Tónastöðinni
Trommuleikari Músíktilrauna
-30 þúsund króna úttekt í Hljóðfærahúsinu
Söngvari/rappari Músíktilrauna
-SHURE hljóðnemi frá Hljóðfærahúsinu
Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku
-Bókagjöf frá Forlaginu
Hljómsveit fólksins
- Upptökuhelgi í Island Studios,Vestmannaeyjum,ásamt hljóðmanni og gistingu.
- Spila í beinni á Rás 2 í Popplandi
- 20.000 kr.úttekt frá Smekkleysu,plötubúð