Úrslitakvöld Músíktilrauna 2010
Úrslitakvöld Músíktilrauna 2010 verður haldið laugardaginn 27.mars í Listasafni Reykjavíkur-Hafnarhúsi, og hefst kl:17:00 . Undankvöld tilraunanna fóru fram í Íslensku Óperunni 15.-18. mars og mættu alveg óvenju margar góðar hljómsveitir til leiks í ár og keppa því 11 hljómsveitir á Úrslitakvöldinu. Rás 2 mun útvarpa beint frá kvöldinu svo að landsmenn allir fá tækifæri á að fylgjast með en jafnframt að kjósa í beinni símakosningu um Hljómsveit Fólksins á tilraununum.
Verðlaun verða veitt fyrir 1.2. og 3. sæti, Hljómsveit fólksins og einstaklingsverðlaun fyrir hljóðfæraleikara Músíktilrauna 2010.Það verður því mikið um dýrðir og ljóst að það stefnir í æsispennandi og fjölbreytta keppni.
Miðasala verður í Listasafni Reykjavíkur frá kl.14.samdægurs.
ÚRSLITAKVÖLD 27.mars 2010
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús, hefst kl.17.
DAGSKRÁ:
Bróðir Svartúlfs (sigurvegarar Músíktilrauna 2009)
Snjólugt
Fimbulþul
Lucky Bob
Husband
GÁVA
The Assassin of a beautiful brunette
HLÉ
Feeling Blue
Vulgate
Dólgarnir
Hydrophobic Starfish
Of Monsters and Men
Senda á Facebook