Músíktilraunir 2010



ANTARES

Sveitarfélag: Hornafjörður

Heimasíða: www.myspace.com/antaresiceland

Nöfn og aldur:
Bjarni Friðrik Garðarsson – Söngur/growl. – 17 ára
Níels Brimar Jónsson – Rhythm guitar/back vocals.- 18 ára
Andri Geir Jónasson – Lead guitar. – 18 ára
Ottó Marvin Gunnarsson – Bassi. – 19 ára
Hafþór Smári Imsland – Trommur/back vocals.- 19 ára

Um bandið:  “Antares hefur verið starfandi frá byrjun ársins 2008 með upprunalegu „line-up“. Antares spila melodic death metal í bland við groove metal og jafnvel smá skvettu af „progressive“. Aðal „influences“ hjá okkur eru hljómsveitir eins og Parkway Drive, Caliban, In Flames, Lamb Of God, As I Lay Dying og fleiri hljómsveitir á borð við þessar. Seinni part ársins 2009 fékk hljómsveitin endanlega æfingaraðstöðu og þá fór allt á fullt.  Æfingaraðstaðan okkar samanstendur af æfingarherbergi og upptökustúdíói. Við leggjum mikið upp úr góðri sviðsframkomu og sem bestum árangri og mætum alltaf vel æfðir á alla staði sem við spilum á. Við nýtum öll tækifæri sem við fáum til að reyna að koma tónlistinni okkar á framfæri og við lítum á þetta sem stærsta tækifærið. Við gerum það sem við gerum vel og höfum gaman að því.
Antares er ein af tveimur starfandi metal-hljómsveitum á Hornafirði.”

Hljóðdæmi: Fatal Words, Well Acquinted To Surroundings