LÆKJARBRÆÐUR

Sveitarfélag: Reykjavík
Heimasíða: Facebook
Nöfn og aldur:
Ragnar Pétur Jóhannsson, söngur / gítar – 16 ára
Guðmundur Sigurðsson, trommur – 16 ára
Brynjar Guðlaugsson, gítar – 15 ára
Sveinn Breki Hróbjartsson, söngur – 16 ára
Vésteinn Þrymur Ólafsson, bassi – 15 ára
Guðbjartur Hákonarson, fiðla – 16 ára
Um bandið: “Lækjarbræður eru sjö ungir drengir úr Laugardalnum, sem hafa spilað saman í rúmt ár. Upprunalega voru það einungis Guðmundur Sigurðsson og Ragnar Pétur Jóhannson að „djamma“. Yfir okkar frábæra ár hafa fleiri bæst í hópinn; Brynjar Guðlaugsson, Vésteinn Þrymur Ólafsson, Guðbjartur Hákonarson, Sveinn Breki Hróbjartsson og Sigurður Traustason. Hann Ragnar Pétur semur lögin, en allir hinir hjálpast við textagerð. Mikið hefur verið hlustað á Sálina hans Jóns míns og hefur það haft áhrif á stílinn okkar. Því mætti segja að við erum popparar. Við höfum fengið góðar undirtektir við að spila í afmælum og veislum og erum því vanir að spila fyrir fólk. “
Hljóðdæmi: Beta,Kalli Kvennagull