MBT

Sveitarfélag: Reykjavík
Heimasíða: http://www.facebook.com/mbtband
Nöfn og aldur:
Atli Snær Ásmundsson, bassi – 18 ára
Ellert Björgvin Schram, gítar – 19 ára
Kári Sigurðsson, trommur – 19 ára
Viktor Jón Helgason, gítar / söngur – 19 ára
Um bandið: “Þetta byrjaði allt saman árið 2005 þegar við vorum að guttast í gagnfræðiskóla. Þá stofnuðu Viktor og Elli hljómsveit með nokkrum félögum úr skólanum, Beefcake, og við spiluðum á árshátiðinni í skólanum ári síðar. Kári var þá í annari hljómsveit, Burning hamsters, sem spilaði einnig á tónleikunum í skólanum. Eftir þessa mögnuðu tónleika fór trommarinn í Beefcake að huga að öðru og Kári kom í hans stað í kringum 2007 og kölluðum okkur Due Crew Þá vorum við ekki byrjaðir að semja okkar eigið efni nema mjög takmarkað. Svo vorum við með nokkrar æfingar á ári, en það varð aldrei nein alvara úr þessu. Svo árið 2009 fór bassaleikarinn í Beefcake að huga að öðru og Atli kom í hans stað. Eftir það hafa verið mjög reglulegar æfingar og við höfum verið að smíða mjög mikið efni sjálfir. Þá ákváðum við að skipta um nafn sem er nú MBT. Fórum í Skúrinn á Rás2 og tókum upp nokkur lög sem voru flutt í útvarpinu og höfum spilað á nokkrum litlum samkomum. Takmarkið er að gefa út plötu árið 2010, en ekki í neinu stressi. Hún mætir ef hún mætir. “
Hljóðdæmi: Bad Day, Levi