VULGATE

Sveitarfélag: Kópavogur
Heimasíða: www.myspace.com/thevulgateband
Nöfn og aldur:
Samúel Örn Böðvarsson – 18 ára
Hjalti Þór Kristjánsson – 18 ára
Andri Kjartan Jakobsson – 21 árs
Ólafur Einar Grétarsson – 18 ára
Rúnar Örn Grétarsson – 18 ára
Um bandið: “Hljómsveitin varð til í október árið 2008. Þeir Hjalti, Sammi, Rúnar og Óli höfðu allir verið saman í hljómsveit í grunnskóla og vildi halda áfram. Þannig að við byrjuðum að semja nokkur lög, innan nokkra mánaða vorum við komnir með nokkur fullsamin lög, án söngs þar sem ennþá vantaði söngvara í hljómsveitina. Við fundum söngvara að nafni Benni, hann ætlaði að taka þátt með okkur á Músíktilraunum 2009 en mætti illa á æfingar þannig að við sögðum honum að sleppa því að mæta. Við héldum áfram að leita að söngvara, í september 2009 fundum við svo ungan pilt að nafni Hannar. Hann spilaði með okkur á nokkrum tónleikum og tók upp með okkur í útvarpsþættinum Skúrinn á Rás 2. Hann þurfti því miður að hætta í hljómsveitinni. Við vorum ekki lengi að finna annan söngvara, því aðeins nokkrum dögum seinna spurðum við félaga okkar Andra Kjartan að joina. Hljómsveitin spilaði á músíktilraunum 2009 án söngvara. Það gekk bara nokkuð vel, en því miður dugði ekki til úrslita og komumst við ekki áfram. En við erum vissir um að við getum komið okkur í úrslit þetta árið.”
Hljóðdæmi: The Purge, Born to serve