ÍSLENSKA HLJÓMSVEITIN

Sveitarfélag: Reykjavík / Grafarvogur
Heimasíða:
Nöfn og aldur:
Gunnar Atli Davíðsson (trommur) – 16 ára
Jóhannes Bjarki Bjarkason (söngur og bassi) – 14 ára
Greipur Garðarsson (rafmagnsgítar) – 16 ára
Viktor Freyr Hjörleifsson (söngur) – 15 ára
Guðmundur Sigurþórsson (kassagítar) – 16 ára
Jón Pálsson (hljómborð) – 15 ára
Um bandið: “Íslenska Hljómsveitin er rokkhljómsveit úr Grafarvogi og var stofnuð 2009 en spilaði ekki formlega fyrr en 2010. Þá tóku þeir þátt í undankeppni Söngvakeppni Samfés og gékk mjög vel. Þeir lentu svo í 2. sæti á Ljóðaslammi 2010 og unnu loks sæti sitt í Músíktilraunum í undankeppni Gufunesbæjar. Markmið Íslensku Hljómsveitarinnar er að verða heimsfrægir fyrir skemmtilega, frumlega og upplífgandi músík. Íslenska Hljómsveitin er sannfærð um það að ef Guð fílar skemmtilega tónlist þá er Íslenska Hljómsveitin uppáhalds hljómsveitin hans.”
Hljóðdæmi: Íslenska Lagið, G-Strengurinn